Bloggfærslur mánaðarins, október 2007

Life...

Maður er bara vinsæll um þessar mundir....Atvinnu tilboðin streyma til mín frá kópavogi , Hafnarfirði og Austfjörðunum ef ég fer til Hafnafjarðar þá fæ ég 250 þúsund í námsstyrk og Austfirðirnir bjóða enn betur eða bæði náms og flutningsstyrk, svo fékk ég nælu og tilboð um VERULEGAN námsstyrk frá kópavogi.....hmmmm kannski bara fer maður að breyta til....

lífið gengur sinn vanagang hjá okkur og ekkert sérstakt að frétta.....

Ragga segir bless, voðalega vinsæl núna.....

 


vikan.....

Síðasta helgi fór í djamm í tilefni bekkjarmóts og fermingarafmæli hjá mínum ektamanni

það var mjög gaman og fór Viktor minn á kostum sem Rauðhetta í einu af skemmtiatriðum kvöldsins....Núna um helgina verður það tekið rólega í faðmi fjölskyldunnar....körfuboltaleikur í kvöld og svo afslöppun

Á miðvikudagskvöld var fyrsti hittingur hjá nýja saumaklúbbnum mínum sem skilgreinir sig sem saumaklúbb þar sem við hittumst, borðum og tölum svo um hvað það væri nú gaman að geta saumað......og auðvitað tölum við svo um eitthvað annað....semsagt kjaftaklúbbur.....Ég held að við ætlum að kalla okkur grasekkjurnar af því að kjarni þessa hóps eru einmana sjómannseiginkonur + Dagga og Aníta sem er hljómsveitargrasekkja......þetta var geggjað skemmtilegt og er búið að plana annan hitting eftir 2 vikur....

Vinnulotan er búin eftir 1 viku hjá mér og þá get ég farið að einbeita mér að lokaritgerð

Ég er búin að léttast enn meira og hef ekki verið í þessari þyngd sem ég er komin í núna síðan löngu fyrir síðustu aldamót ......

Ragga segir bless í bili.....

 


Röggu búð....

Ég er komin með fótboltabúninga á 1500 í stærðum s, m og l

Arsenal, Chelsea, Man U , Barcelona og Liverpool.....flott sett á fáránlegu verði

og Diesel , Von Dutch og Dolce & Gabbana peysur og boli ( unglingastærðir ) á 1000 kr

bara flott í jólapakkann.....

Svo er ég enn með Spiderman 3 boli á 1000 kr en alveg eins bolir kosta 1500 í Hagkaup

Myndir síðunni hans Ísaks á barnalandi

 


I'ts beginning to look a lot like christmas....

Ég ætla að hvetja alla sem lesa þetta blogg til að gera góðverk fyrir jólin.

Við í minni fjölskyldu ætlum að senda skókassa í verkefnið jól í skókassa

þetta felst í stuttu máli í því að setja jólagjöf, fatnað, skóladót, hreinlætisvöru og sælgæti í skókassa fyrir annað hvort strák eða stelpu á einhverjum aldri.  Skókassinn er svo sendur til Úkraínu fyrir jólin.  Skilafrestur er til 3 Nóv. 

Sjá Ýtarlegar leiðbeiningar hér:  http://www.skokassar.net/?page_id=8

á síðunni er hægt að fá merkimiða

Við höfum öll efni á þessu og muna svo að virkja börnin með í þetta verkefni......

Ragga segir just do it.....

 


Allt fyrir ástina...ÚÚÚ....

Við hjónin skelltum okkur á ball með snillanum Páli Óskari síðustu helgi.

Hilda megababe kom allaleiðina frá borg óttans til þess að djamma með okkur og það var algjör snilld að hitta hana aftur.  Var komin með djamm fráhvarfseinkenni síðan í París....

Dagga og súkkulaði gæinn hennar ....slef...og vinir hans komu líka

og ekki má gleyma henni Möggu, við fórum á eitthvað brjálað flipp þetta kvöld...við hlógum sko mikið og dönsuðum líka eins og geðsjúklingar( í bókstaflegri merkingu )hehe.... 

eskimo
Custom Smiley hóst eskimóaflipp....you had to be there.....

Ég var allvega ekki eins drukkin og síðast þegar ég fór út og þurfti ekkert að skammast mín fyrir þetta kvöld og ég hræddi heldur engin börn....( sjá comment að neðan )

´sem betur fer á ég ekki myndir af þessu djammi.....

 

Ragga segir  

Bless
Custom Smiley 

 

 








Ofurölvi ofurhetjur ...myndir...

IMG_0778Hrafnhildur 8 Wonderwoman) og Magga ( Batgirl) , sætar systurIMG_0775Ég ( catwoman )og Magga urrrrrr........

IMG_0763 Röggi  ( Hitler ).....

 

Næ ekki fleiri myndum inn í bili

Ragga segir bless             

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband