Bloggfærslur mánaðarins, október 2006
Myndir af Papaballi
30.10.2006 | 14:20
Myndir frá Hildu
Ég og Hilda
við hjónin upp við sviðið
Hér eru myndir teknar af djamm.net
Arna, Steina, Ég sjálf og Gunnsa ( Bachelor gella..)
Ég og Gunnsa
knús Ragga
Bloggar | Breytt 1.11.2006 kl. 11:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Helgin...
29.10.2006 | 21:33
Elsku Sara systir vann fyrir mig og passaði Viktor Franklín svo að ég kæmist í mat hjá Tengdó og á ball....Takk æðislega elsku systa
papa ballið var hreint út sagt Frábært í alla staði
Hilda vinkona kom alla leiðina frá Reykjavík til að djamma með okkur og hún sá örugglega ekki eftir því það var ekkert smá gaman að hitta hana og mættu fleiri vinkonur mínar taka hana til fyrirmyndar og koma í heimsókn á krókinn ég nefni engin nöfn...hóstþórunnhósthóst......he he
Svo í dag fórum við hjónakornin og Hilda og fengum okkur ógeðslega óholla þynnkumáltíð á Ábæ
ummmm....þar sem ég svaf bara í 5 tíma þá var ég pínu þreytt í vinnunni en það hafðist...
ég set inn myndir seinna af mér á djamminu...Hilda þarf að E-meila mér myndir...ég nenni aldrei að taka djamm myndir
bless......
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Í næsta lífi...
28.10.2006 | 13:49
skógarbjörn.
Ef þú ert björn færðu að leggjast í dvala, þú gerir ekkert annað en að
sofa í sex mánuði. Ég gæti lifað með því :)
Áður en þú leggst í dvala áttu að troða þig út af mat þangað til þú
stendur á gati. Ég gæti líka lifað með því
Ef þú ert kvenkynsbjörn þá fæðirðu ungana þína (sem eru á stærð við
hnetur)á meðan þú sefur og þegar þú vaknar ertu komin með stálpuð
sjálfbjarga bangsakrútt. Ég gæti sko alveg lifað með því
Ef þú ert björn þá BÝST maki þinn við því að þú vaknir urrandi og
hann REIKNAR MEÐ því að þú sért loðin á leggjunum og með hátt hlutfall
líkamsfitu.
Jebb, ég ætla að verða skógarbjörn ............
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
helgin framundan...
27.10.2006 | 12:33
Viktor Franklín er enn pínu slappur...hann er samt allur að koma til
svo er PAPA ball annað kvöld á nýja "BARNUM"
við hjónin ætlum að kíkja ásamt bræðrum hans Vicks og foreldrum...
Ragga bara að fara á ball með tengdó...spáið í spennunni...
ég er að vinna um helgina og hef hreinlega bara ekkert í fréttum
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bla bla bla...
25.10.2006 | 11:50
Viktor Franklín er enn heima veikur...frábært það er komin vika í dag
Ég kíkti á Dóru í kaffi og smá bla bla stund í gærkvöldi...það var roalega fínt....
Magga Bumbulíus var svo þreytt þannig að við kíktum ekkert til hennar
ég er nú alveg viss um að hún var með carmen rúllurnar í hárinu...he he og skammaðist sín fyrir það
Ég fer að vinna í kvöld
LAter
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Vinir...
23.10.2006 | 20:33
Við vorum spurðar að því skólanum í dag hvort að við ættum einhverja æskuvini sem væru ennþá vinir okkar í dag, þá fór maður að hugsa hvað er vinur og hvað á maður marga vini og hvað marga kunningja
Það eru margar ástæður fyrir því að við þurfum á vinum að halda.
Við þurfum á öðrum að halda því við erum félagsverur í eðli okkar.
Við þurfum vini til að gleðjast með á góðum stundum og til að
þiggja góð ráð af.Við þurfum vini til að geta stólað á.
Við þurfum vini til að finna hlýju og kærleika. Við þurfum vini til
hugga okkur á erfiðum stundum.Við þurfum á öðrum að halda,því
oft þurfum við hjálp við að finna lausnir á málum sem við erum
að takast á við. En fyrst og fremst þurfum við vini til að deila
lífinu með.
ég held að allir ættu aðeins að pæla í að láta fólkið sem að skiptir það máli vita af því reglulega
Ragga, rosalega mikið að pæla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Helgin...
22.10.2006 | 13:51
Viktor Franklín er búinn að vera mjög veikur alla helgina
Við pöntuðum okkur bara pizzu á föstudagskvöld og tókum spólu og höfðum það notalegt heima...
Spúsinn var að vinna til kl 16 á Laugardag svo að ég og lilli veiki snúðurinn vorum mest allan daginn ein heima...Ísak er nú nánast aldrei heima hjá sér reyndar kíktu ma og pa og Sara systa og Gunnar B. í örstutta heimsókn
Ma kíkti áðan og Sara og GB líka
Í dag er Manchester -Liverpool þannig að það er verið að glápa á það með öðru auganu
núna er staðan 2-0 manchester í hag.
Þá verður nú kallinn í góðu skapi það sem eftir er dags
Ísak fer svo á leikritið um hann Gosa með afa Gunna á eftir kl 15
Við skellum okkur nú örugglega bara á opnun barsins næstu helgi sem að reyndar á að heita MÆLIFELL
þá er að rifja upp írsku danstaktana sem að eru löngu gleymdir..he he
Viktin mín hefur bara staðið í stað í nokkra mánuði...Ég hef ekkert verið ströng á mataræði vegna þess að ég er nokkuð sátt við viktina eins og hún er, þannig að ég hef bara verið að hlaupa og gera styrktaræfingar til þess að þyngjast ekki aftur
Búin að troða í mig nammi alla helgina og ætla að vera dugleg að hlaupa í vikunni
þannig að þessa helgi var ég í faðmi fjölskyldunnar
Ragga kveður
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Veikindi í gangi og ekkert djamm....
20.10.2006 | 12:02
Ég fór í litun og klippingu í gær
Litli krumminn hann Viktor Franklín er með 39,5 stiga hita litla greyið
sem þýðir að Ragga og hennar heittelskaði eru ekki að fara á ball í kvöld.....
hérna vantar reyndar útidyrahurð og skilti
jæja okkur langar að fara næst helgi en þá opnar BARINN aftur eftir að við seldum hann
það er búið að taka hann í gegn frá a-ö og þetta er geggjað flott
smá mynd af breytingunum
og það verður PAPA BALL
ég hvet alla til að mæta þetta er ekki líkt hinum staðnum..það var allt rifið út.....
þá er bara að redda pössun þá og skella sér
við kannski förum út að borða í kvöld ef að litli snúður verður ekki slæmur
Ragga segir bless bless
Bloggar | Breytt 21.10.2006 kl. 12:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýtt blogg
18.10.2006 | 13:15
það gengur eitthvað illa hjá mér að stilla þessa síðu
breytingarnar eru inni hjá mér en birtast ekki á síðunni
geðveikt pirrandi
Ég var að gera augarbrúnirnar mínar fínar og setja á mig brúnku
maður verðu nú að vera fínn ef að maður er að fara á ball
svo fór ég á brettið og lærði
Ragga hefur tjáð sig
later...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
ball
17.10.2006 | 13:44
með Magna og félögum
( bara fyrir Magna )
ef að það gengur ekki eftir þá er bara að senda þá með póstinum til Guðbjargar Kr.( sjá comment á fyrra blogg )
Þá er bara að dusta rykið af glansgallanum, fægja ballskóna og fara í ríkið en inn í þá verslun hef ég ekki komið að versla fyrir sjálfa mig í LANGAN TÍMA ...já ég veit hvað ég lifi ekki spennandi lífi...alllavega ekki djammlega séð....
ég er að fara að vinna í kvöld
Ragga segir bless í bili
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)