Daginn í dag.....Daginn í dag...lala la la la.....
21.11.2006 | 23:33
Í gær hljóp ég í 70 mín og fór 8 km. og sló þar með fyrra metið mitt.
Í dag hljóp ég í 53 mín og gerði 15 mín styrktaræfingar, magi, rass og læri....
Ég er farin að halda að ég eigi ekkert að skila ritgerðinni góðu sem er núna by the way orðin 33 síður... því að prentarinn minn var ekkert að virka við fartölvuna, svo að ég samdi við Dóru að fá að prenta hjá henni, jú það var ekki málið, síðan e-mailaði ég henni allt heila draslið en viti menn hún fékk ekki póstinn, svo sendi ég aftur og hún fékk póstinn í það skiptið, þegar ég ætlaði svo að prenta var blekið búið hjá henni....ókei, sagan endar ekki þarna....nema ég kem heim staðráðin í að láta helv...prentarann virka við fartölvuna og tekst það að lokum....og hvað haldið þið...svarta blekið hjá mér búið.... omg...
Dóra bauð okkur í súpu áðan og komum við heim um 8 leytið
takk fyrir okkur Dóra
Á morgun byrjar vinnutörn hjá mér í 7 daga...
jæja látum það gott heita
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Helgin....
19.11.2006 | 14:24
Í gær fórum við í afmæli til Ísabellu frænku, hún var 1 árs í gær....
hún er algjör dúlla, og er byrjuð að labba....
eftir veisluna fórum við´í mat til ma og pa og þar horfðum
við á ísöldina 2....
við erum búin að hafa það gott og erum búin að spila og fíflast mikið alla helgina
það eru nýjar myndir inn á barnalandi...
Það er ískalt úti.....
hafið það gott....
blesssssss.....................
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mont...
17.11.2006 | 17:30
í morgun þá sló ég mitt persónulega met á hlaupabrautinni "góðu"
og fór 7.8 km á 73 mín.
.........þurfti bara að segja frá þessu
kiss kiss
Ragga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ragga er mætt á svæðið....
16.11.2006 | 22:58
jæja
Ég var búin að skrifa þetta líka fína blogg um daginn en þá datt það út og ég fór í fýlu við síðuna mína og hef ekkert nennt að blogga....
Ég fór á fund til kennara Ísaks og hann er svo duglegur að hann fékk lestrarbók sem er ekki inn á heimalærdómsplaninu, svo áðan bað hann mig um að lesa með sér og snillinn bara kláraði bókina.... litli proffinn minn......
Svo hljóp ég í klukkutíma í morgun og lærði í fjóra helv... tíma
og ég er búin með 28 síður af 30 í ritgerðinni góðu ( sjá fyrra blogg )þannig að ég segi allir að klappa fyrir mér...
og já, það er kalt úti, ekki gleyma því að klæða sig vel....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Komin í viku frí
14.11.2006 | 22:44
Jæja þá er 7 daga vinnutörnin mín búin og við tekur 7 daga frí....im loving it....ég hef ekki mikið að segja frá....Ég er með kvef og viðbjóðslegan varaþurrk ég lít út fyrir að vera með eldrauðan varalit... jakkk.......
og það er skuggalega stutt til jóla
Ragga hefur nóg að gera
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
meinilla farin og búin að vera....
10.11.2006 | 16:02
Ég ætti kannski að skrifa um eitthvað alvarlegt eins og pólitík, hungursneyð eða eitthvað álíka merkilegt en ég ætla ekki að gera það.
Í staðinn ætla ég að vorkenna sjálfri mér aðeins.
Í skólanum eigum við að gera verkefni sem gildir aðeins 20 % af lokaeinkum og æskileg lengd er aðeins og já haldið ykkur nú fast aðeins 30 -50 síður.....þetta er by the way eins og maður segir nú á góðri íslensku, bara ritgerð...þetta er nú bara eins og lokaritgerð í flestu námi....ofan á þetta eru 4 ritgerðir í öðru fagi og 3 önnur verkefni í þessi fagi sem gilda bara 8% og svo til þess að toppa þetta allt saman er próf í desember og það er meðal annars um landsmótun, bergtegundir, myndun stöðuvatna og allar helstu dýrategundir , líka Fuglar hér á landi ÆL......Það er nú eins gott að fólk sem hugsar um börn landans sé nú hámenntað....
úfff þannig að Raggan hefur meira en lítið að gera núna þar sem eiginmaðurinn er langt úti á hafsauga núna. Þannig að ég segi allir að vorkenna mér....nei nei þetta er allt í lagi...
en annars er ég í fríi bæði jól og áramót í vinnunni......júhú....
Ragga segir Bless.......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Helgin búin...
7.11.2006 | 16:02
Jæja þá er helgin afstaðin.
Ég fór á árshátíðina og var svo glerfín að sjálf öskubuska( þegar hún var á dansleiknum góða) hefði skammast sín fyrir útganginn á sér....he he...hvað má maður ekki hafa gott álit á sinni eigin fegurð....
Svo var vægast sagt með því verra roki sem hefur verið í langan tíma hérna á Sunnudaginn þannig að maður hélt sig sko innandyra með angana tvo og hafði það náðugt í faðmi barnanna....bakaði vöfflurog alles....ég gat nánst séð rassinn á mér stækka á meðan ég steikti blessuðuð VÖPPLURNAR eins og tengdó mundi orða það , nei ég skrifaði ekki vitlaust hún segir þetta með péi ekki effi eins og við hin
Svo var það helv...skólinn í gær
og í dag er ég búin að hlaupa, þrífa og læra, læra fussum svei, ég sem hélt alltaf að ég væri vel LÆRÐ...
en maður fær víst ekki hærri laun fyrir það eitt að vera með sver læri....
Ísak minn ætlar að vera líkur honum pabba sínum. Í dag þá bað hann um að fá að skúra...já hann BAÐ UM ÞAÐ...og að sjálfsögðu (ég sem er alltaf eins og allir vita góðmennskan uppmáluð )leyfði ég honum það og hann skúraði stofuna og herbergið sitt og kom svo og þakkaði fyrir að fá að skúra og sagðist hafa haft gaman af því....jeminn ekki líkist hann mér...ekki vitund
jÆJA ÉG BYRJA AÐ VINNA ANNAÐ KVÖLD
BÆJÓ SPÆJÓ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Halló...
3.11.2006 | 18:54
Núna er ég í fríi...
Í gær var afmæli hjá Gunnari Blöndal og fórum við í veislu hjá honum...takk fyrir okkur
Ég kíkti til mömmu og pabba áðan og Döggu og Natans í smástund, þvílíkt fallegur drengur....
svo er árshátíð Sjúkrahússins á morgun þ.e matur og ball, ég ætla að kíkja með mömmu og pabba...
þá fer maður í kjól og hælaskó...úlala...
Sara og Gunnar B eru í mat núna við erum að bíða eftir pizzu...
Later....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Myndir af Papaballi
30.10.2006 | 14:20
Myndir frá Hildu
Ég og Hilda
við hjónin upp við sviðið
Hér eru myndir teknar af djamm.net
Arna, Steina, Ég sjálf og Gunnsa ( Bachelor gella..)
Ég og Gunnsa
knús Ragga
Bloggar | Breytt 1.11.2006 kl. 11:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Helgin...
29.10.2006 | 21:33
Elsku Sara systir vann fyrir mig og passaði Viktor Franklín svo að ég kæmist í mat hjá Tengdó og á ball....Takk æðislega elsku systa
papa ballið var hreint út sagt Frábært í alla staði
Hilda vinkona kom alla leiðina frá Reykjavík til að djamma með okkur og hún sá örugglega ekki eftir því það var ekkert smá gaman að hitta hana og mættu fleiri vinkonur mínar taka hana til fyrirmyndar og koma í heimsókn á krókinn ég nefni engin nöfn...hóstþórunnhósthóst......he he
Svo í dag fórum við hjónakornin og Hilda og fengum okkur ógeðslega óholla þynnkumáltíð á Ábæ
ummmm....þar sem ég svaf bara í 5 tíma þá var ég pínu þreytt í vinnunni en það hafðist...
ég set inn myndir seinna af mér á djamminu...Hilda þarf að E-meila mér myndir...ég nenni aldrei að taka djamm myndir
bless......
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)